17.12.1984
Neðri deild: 27. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2087 í B-deild Alþingistíðinda. (1537)
190. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Á þskj. 328 er nál. hv. félmn. Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir með því að það verði samþykkt óbreytt. Undir þetta nál. rita auk mín hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, Stefán Valgeirsson, Eggert Haukdal, Guðmundur J. Guðmundsson, Halldór Blöndal og Stefán Guðmundsson.
Þetta frv. er eins og sum önnur sem nú eru til afgreiðslu og til meðferðar í þessari hv. deild um hækkun á fjárhæðum í lögum vegna þess að ekki er gefin upp skattvísitala í fjárlagafrv. Þess vegna er nauðsynlegt að flutt sé sérstakt lagafrv. til breytinga á tekjustofnalögum sveitarfélaga.