17.12.1984
Neðri deild: 27. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2091 í B-deild Alþingistíðinda. (1549)

188. mál, barnabótaauki

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti fjh.- og viðskn. um frv. til l. um sérstakan barnabótaauka.

N. hefur skoðað málið og leggur til að frv. verði samþykkt. Einstakir nm. áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. Hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir sat fundi n. og er samþykk áliti þessu.

Undir þetta skrifa hv. þm. Páll Pétursson, Guðmundur Einarsson, Þorsteinn Pálsson, Kjartan Jóhannsson, Svavar Gestsson, Friðrik Sophusson og Halldór Blöndal.