18.12.1984
Sameinað þing: 35. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2142 í B-deild Alþingistíðinda. (1624)

208. mál, framlag til hjálparstarfs í Eþíópíu

Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Ég hef á þskj. 246 leyft mér að bera fram svohljóðandi fsp. til forsrh., með leyfi forseta:

„Hyggst ríkisstj. láta fé af hendi rakna til hjálparstarfs á þurrka- og hungursvæðunum í Eþíópíu?“

Ég tel mig ekki þurfa að hafa um þetta mál ýkja mörg orð. Ég er sannfærður um að þingheimur allur hefur séð í sjónvarpi þær myndir sem brugðið hefur verið upp frá þessum hörmungasvæðum, þar sem mannleg þjáning og hörmungar koma í heimsókn inn í stofurnar til okkar hér norður á Íslandi. Það er auðvitað kunnara en frá þurfi að segja hverju tiltölulega litlar upphæðir geta áorkað í þessum efnum. Ég nefni aðeins hér sem dæmi að fyrir 400–500 ísl. kr. er hægt að sjá einu barni fyrir þurrmjólk og nauðsynlegum eggjahvítuefnum í heila tvo mánuði. Fyrir 400–500 kr. íslenskar er hægt að kaupa lyf sem duga 50 manns í heilan mánuð.

Ég hygg að það sé staðreynd að flestar ríkisstjórnir nágrannalanda okkar hafa látið nokkrar fjárupphæðir af hendi rakna til þessarar söfnunar sem kirkjufélög, alþjóða Rauði krossinn og hjálparstofnanir kirknanna hafa gengist fyrir. Hér á landi hefur þessi söfnun hlotið afar góðar undirtektir, að ég hygg, og mér leikur hugur á að vita hvort íslenska ríkisstj. hyggist leggja eitthvað af mörkum. Þó svo að mönnum sýnist að fjárhagur ríkisins sé knappur og leyfi ekki stórar aðgerðir á þessu sviði held ég að við megum ekki gleyma því, Íslendingar, að við sitjum við gnægtaborð. Hvað sem ástandi þjóðmála líður, sitjum við við mikið veislu- og gnægtaborð miðað við það sem aðrir mega við búa, t.d. það fólk sem okkur hafa verið sýndar myndir af og sagt hefur verið frá í sjónvarpi hér á undanförnum vikum. Þess vegna fyndist mér eðlilegt að opinberir aðilar hér létu eitthvað af hendi rakna í þessu augnamiði. Þar sem vitneskja um það liggur ekki fyrir hef ég leyft mér að bera fram þessa fsp. í von um jákvæð svör.

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson): Herra forseti. Til forsrn. og ríkisstj. hefur aðeins borist ein beiðni um aðstoð vegna þurrkanna og hungurs í Eþíópíu og reyndar á því þurrkasvæði sem þar er. Sú var frá Rauða krossi Íslands og upp á litlar 200 þús. kr. Var að sjálfsögðu aukafjárveiting veitt fyrir því. Önnur beiðni hefur ekki komið til ríkisstj. og fyrir ríkisstj. liggur ekki nein till. um frekari aðstoð.

Ég vil taka mjög undir það með hv. þm. að þarna er um miklar hörmungar að ræða og ástæða til fyrir þær þjóðir sem búa við allsnægtir að láta nokkuð af hendi rakna. Það sem við höfum látið af hendi rakna í þróunaraðstoð almennt er tiltölulega mjög lítið og eins og hv. þm. vita langt frá því marki sem þjóðirnar settu sér á sínum tíma. Ég vil hins vegar nota tækifærið og lýsa ánægju minni með það sem fengist hefur í frjálsu framlagi þegar leitað hefur verið til landsmanna bæði fyrir síðustu áramót og aftur í þeim samskotum sem nú eru í gangi og menn ættu að taka góðan þátt í.

En m.ö.o., það liggja ekki fyrir neinar tillögur frá ríkisstj. um frekari aðstoð.