19.12.1984
Efri deild: 36. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2203 í B-deild Alþingistíðinda. (1714)

214. mál, söluskattur

Frsm. 2. minni hl. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti 2. minni hl. fjh.- og viðskn. um frv. til l. um söluskatt. Nefndin hefur kynnt sér málið og eins og fram hefur komið hefur hún þríklofnað í afstöðu sinni til þess og hefur frsm. 1. minni hl. þegar skilað hér áliti.

Þetta frv. er til komið vegna fjárhagsvanda ríkissjóðs og vísast hér til grg. eða aths. með frv. og framsöguræðu hæstv. fjmrh. sem hann hefur nýlokið hér við að flytja.

2. minni hl., en auk mín skrifa undir nál. hans hv. þm. Valdimar Indriðason og Egill Jónsson, leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.