20.12.1984
Efri deild: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2321 í B-deild Alþingistíðinda. (1822)

Þingfrestun

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Þar sem þetta er síðasti fundur þd. fyrir jólahlé er mér ljúft að þakka hv. þdm. fyrir sérstaklega ánægjulegt samstarf og mikið umburðarlyndi í minn garð það sem af er þessu þingi sem hefur gert það að verkum að störf í deildinni hafa gengið vel og greiðlega sem raun ber vitni.

Ég óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári. Einnig óska ég skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki öllu gleðilegra jóla og farsæls komandi árs um leið og ég þakka ánægjulegt samstarf og alla fyrirgreiðslu þeirra. Þeim hv. þdm. sem eiga um langan veg heim að fara óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið þess að við megum öll hittast heil á nýju ári.