20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2329 í B-deild Alþingistíðinda. (1833)
Umræður utan dagskrár
Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir taldi að svar Bandaríkjamanna væri aðeins viljayfirlýsing og skjali Arkins hvorki játað eða neitað. Og hv. þm. Guðmundur Einarsson sagði að ekkert nýtt hefði komið fram í svari Bandaríkjanna. Við skulum aðeins rifja upp um hvað málið snýst. Málið snýst um þá staðhæfingu að fyrir liggi heimild til bandarískra herja að flytja kjarnavopn til Íslands á ófriðartímum. Hvað segir yfirlýsingin og svarið varðandi þetta megininntak staðhæfingar Arkins sem kom af stað þessum umr.? Bandaríkin segja, með leyfi forseta:
„Um leið hefur mér verið falið að ítreka að Bandaríkin hafa í einu og öllu farið eftir og munu halda áfram að fara eftir ákvæðum varnarsamningsins við Ísland frá 1951 og samþykkt Atlantshafsbandalagsins varðandi staðsetningu kjarnavopna, sem áskilja að sérhver heimild til Bandaríkjahers til þess að flytja kjarnavopn til Íslands mundi aðeins verða veitt að fengnu samþykki íslensku ríkisstjórnarinnar.“
Þarna kemur í ljós að Bandaríkin hafa ekki veitt neina heimild og munu ekki veita neina heimild nema að fengnu samþykki íslensku ríkisstjórnarinnar. Það er og kunnugt að það hefur engin beiðni komið fram frá Bandaríkjastjórn og leyfi hefur ekkert verið gefið af hálfu ríkisstjórnar Íslands. Það er því fullkomlega afsönnuð sú staðhæfing, sem William Arkin viðhafði hér fyrir nokkrum vikum, að slík heimild lægi fyrir til Bandaríkjaherja að staðsetja kjarnavopn hér á Íslandi á ófriðartímum. Og ég verð að segja það eins og er að ég held að við ættum að fara varlega í að leggja út af staðhæfingum manns sem hefur játað að fyrri staðhæfingar varðandi þessi efni hafi verið rangar og kippa okkur ekki upp við endurteknar og breyttar staðhæfingar hans í nýrri útgáfu þegar fyrir liggur slík afdráttarlaus yfirlýsing af hálfu Bandaríkjanna.
Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson sagði að megininntakið væri hvort Ísland væri inni í kjarnorkuáætlun Bandaríkjanna og spurði hvort svo væri. Það er óhætt að svara þessari spurningu neitandi vegna þess að Bandaríkjamenn hafa ekki óskað eftir eða borið fram neina beiðni þar að lútandi til íslensku ríkisstjórnarinnar sem Bandaríkjastjórn gerir sér ljóst og tekur fram að hafi úrslitavaldið í þessum efnum. Þar af leiðandi hefur ekkert leyfi verið veitt að þessu leyti.