20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2393 í B-deild Alþingistíðinda. (1865)
1. mál, fjárlög 1985
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Mér sýnist að orðið hafi mistök varðandi 21. brtt. á þskj. 381 frá meiri hl. fjvn., Tryggingastofnun ríkisins. Þessi brtt. virðist ekki hafa átt að koma til atkv. því að liðurinn hafði verið ákveðinn með brtt. á þskj. 412 frá meiri hl. fjvn. þar sem liðurinn er lækkaður um 25 millj. kr. Það stafar af því að brtt. er flutt um lækkun á þessum lið, en í staðinn kom inn 20 millj. kr. framlag til K-byggingar Landspítalans. Hér er því um mistök að ræða varðandi þessa atkvgr. Ég óska eftir að það sé tekið til greina.