20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2395 í B-deild Alþingistíðinda. (1867)

1. mál, fjárlög 1985

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Vegna fjármálastöðu ríkissjóðs og af því sem mér sýnist að mjög mikið óöryggi yrði við innheimtu þess fjármagns sem hugsað er að lána út, en eftirspurn mikil, segi ég nei.

Brtt. 410,20.7.4–7.5 samþ. með 42:2 atkv.

— 410,20.7.6 samþ. með 45 shlj. atkv.

— 424 samþ. með 42:2 atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv., svo breytt, samþ. með 41 shlj. atkv. og afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 425).