20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2398 í B-deild Alþingistíðinda. (1879)

Þingfrestun

Ragnar Arnalds:

Fyrir hönd okkar alþm. vil ég þakka virðulegum forseta fyrir hlý orð og góðar óskir okkur til handa. Ég vil óska honum og fjölskyldu hans gleðilegrar hátíðar og farsæls komandi árs um leið og ég þakka honum fyrir góða forustu um þingstörfin það sem af er þinginu og fyrir réttláta fundarstjórn. Ég vil leyfa mér að vænta þess að við megum öll hittast hell að loknu þessu hléi á fundum Alþingis. Ég vil biðja hv. alþm. að taka undir orð mín með því að rísa á fætur. — [Þm. risu úr sætum.]