28.01.1985
Sameinað þing: 39. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2401 í B-deild Alþingistíðinda. (1883)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir í garð okkar þm. Jafnframt vil ég óska hæstv. forsrh., þm. öllum og starfsfólki Alþingis góðs árs og þakka fyrir ánægjulega samvinnu á liðnu ári. Ég býð alla velkomna til starfa á nýju ári.

Skv. forsetabréfi því sem hæstv. forsrh. hefur flutt, þá hefur fundur í Sþ. verið settur.