30.01.1985
Neðri deild: 37. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2498 í B-deild Alþingistíðinda. (1982)
209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um Verðlagsráð sjávarútvegsins. Frv. þetta er flutt í framhaldi af því að þegar lög um Olíusjóð fiskiskipa voru samþykkt 11. febr. 1983 var kveðið svo á um í bráðabirgðaákvæði að Alþingi skyldi kjósa fjóra menn í nefnd til að endurskoða lög um Verðlagsráð sjávarútvegsins. Sjútvrh. skyldi skipa í nefndina skv. tilnefningu fulltrúa sjómanna, útgerðarmanna og fiskvinnslu, auk formanns. Mál þetta er því unnið vegna frumkvæðis Alþingis og má því segja að það hefði verið á margan hátt eðlilegra að sjútvn. þingsins hefðu flutt málið í framhaldi af niðurstöðu nefndarinnar, en af því varð ekki og er frv. því flutt sem stjfrv. Það er algjörlega í samræmi við álit þeirrar nefndar sem skilaði af sér á s.l. ári.
Þær breytingar, sem einkum eru gerðar með þessu frv., eru eftirfarandi:
1. Fækkað er um fulltrúa í ráðinu úr tólf í átta. Rétt er að taka það fram að m.a. er gerð sú breyting að fulltrúar rækjuvinnslu fara úr ráðinu, en þeir fulltrúar hafa mótmælt því og sendu þm. um það erindi nú fyrir jólin. Það er að sjálfsögðu eðlilegt að sjútvn. taki það erindi og þær skoðanir til athugunar og vil ég ekkert um það segja á þessu stigi.
2. Nýtt lagaákvæði er heimilar Verðlagsráði að gefa verðlagningu á tilteknum fiskitegundum frjálsa er sérstaklega stendur á að mati ráðsins, enda sé um það einróma samkomulag. Það geta vissulega verið þannig aðstæður að rétt sé að gefa verðlagninguna frjálsa þótt það verði vart í mjög mörgum tilvikum. Ef hins vegar er um það eindregið samkomulag í Verðlagsráði, eins og hér er kveðið á um, þótti nefndinni rétt að slíkt væri heimilt.
3. Nýtt lagaákvæði er kveður á um að Verðlagsráðið skuli haga verðákvörðunum sínum þannig að þær stuðli að bættri meðferð afla þannig að ávallt verði tekið mið af gæðum sjávarafla við verðákvarðanir eftir því sem markaðsaðstæður bjóða.
4. Í lögin verði bætt nýju ákvæði þess efnis, að þegar Verðlagsráð vísar ágreiningsatriðum til yfirnefndar skuli fylgja grg. um þau atriði sem samkomulag er um.
5. Ákvæði um skipan sérstakra fulltrúa við verðlagningu á rækju, hörpudiski og grásleppuhrognum verði fellt niður. Því hafa þeir mótmælt, rækjumenn.
Ég skal ekki fjölyrða um þetta mál frekar, en vænti þess að það verði tekið til vandaðrar meðferðar í sjútvn. þingsins. Hér er um að ræða mál sem er flutt að frumkvæði Alþingis og er það vel. Það er unnið af mönnum sem eru tilnefndir af þinginu ásamt hagsmunaaðilum. Vænti ég þess að það fái, sérstaklega með tilliti til þess, skjóta meðferð hér á þingi.
Ég vil að lokum leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.