04.02.1985
Efri deild: 40. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2582 í B-deild Alþingistíðinda. (2054)

237. mál, Lífeyrissjóður bænda

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegur forseti. Ég gerði hliðstæða athugasemd við þær ráðleggingar sem ég fékk áður en ég flutti þessa brtt. En mér var sagt að það væri hefð að þessi mál færu til landbn. En ég get stutt þá brtt. sem hv. 5. landsk. þm. gerir og breyti þá minni till. ef það fullnægir hans óskum og legg til að frv. verði vísað til hv. fjh.- og viðskn.