05.02.1985
Sameinað þing: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2608 í B-deild Alþingistíðinda. (2073)

Skýrsla iðnaðarráðherra um Sjóefnavinnsluna

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það er ljóst mál að það hefur dregist lengi að gefa þá skýrslu sem hv. 3. þm. Reykn. ræddi um. Ég er þess ekki umkominn að skýra hér frá því hvaða ástæður liggja fyrir þessum drætti. Það mun hæstv. iðnrh. gera, geri ég ráð fyrir. Hæstv. iðnrh. er nú erlendis í opinberum erindum, en honum verður gert kunnugt um það sem hv. 3. þm. Reykn. hefur hér sagt.