12.02.1985
Sameinað þing: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2846 í B-deild Alþingistíðinda. (2314)

286. mál, kjör og starfsaðstaða framhaldskólakennara

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég hygg að það séu allir sammála um það að halda áfram þessari umr. svo fljótt sem verða má. Það er ekki útilokað að það megi verða á fimmtudag eins og hv. 3: þm. Reykv. sagði. Það er ekkert sem bannar það þó að það sé ekki venja. En ég hygg að málið sé það óvenjulegt og beri að með þeim hætti að það réttlæti að bregða út af venju. Það mun verða séð um það að framhald umr. fari fram eins fljótt og kostur er.