23.10.1984
Sameinað þing: 8. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í B-deild Alþingistíðinda. (233)

68. mál, lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara

Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svör hennar. Ég fagna því að vinnu að þessu málefni skuli nú vera hraðað, að úrlausnar skuli vera svo fljótt að vænta. Ég veit að þetta er mikið áhugaefni margra þm., þannig að það verður beðið eftir niðurstöðu málsins. En ég fagna því að það er þegar í framkvæmd því að öllu máli skiptir að úrlausn fáist.