14.02.1985
Sameinað þing: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2918 í B-deild Alþingistíðinda. (2402)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það skal tekið fram að hv. 5. þm. Vestf. hefur farið rétt með það sem hann vitnaði til, 11. gr. þingskapa. En hv. þm. lauk ekki þeirri mgr. sem hann vitnaði í. Á eftir því sem hv. þm. las upp stendur:

Í öllum þessum störfum sínum skal skrifstofustjóri háður eftirliti forsetanna og skulu þeir semja og setja erindisbréf handa honum og öðrum starfsmönnum þingsins.“

Það eru forsetar þingsins sem bera ábyrgð á skrifstofustjóra Alþingis.