14.02.1985
Sameinað þing: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2919 í B-deild Alþingistíðinda. (2408)

Um þingsköp

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Ég neyðist til að koma hér aftur og svara þessari fsp. hv. 5. þm. Vestf. Þessi margumræddi bréflappi minn var ekki stílaður til annarra en þeirra sem koma inn í símaklefana. Það var ekki sérstakt ávarp til þm. umfram aðra. Þetta var almennt til þeirra sem nota símaklefana.