14.02.1985
Sameinað þing: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2920 í B-deild Alþingistíðinda. (2410)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það hafa ekki fleiri kvatt sér hljóðs um þingsköp og er mál til komið að umr. þessari linni.

Þessi umr. er glöggt merki þess hvernig þingsköp eru misnotuð þegar hafin er slík umr. Það er talað um af hv. 5. þm. Vestf. að það sem skeð hefði í símaklefunum væri til óvirðingar Alþingi. Ég held að við hljótum öll að telja, og ég veit að hv. 5. þm. Vestf. hlýtur að vera sammála um það, að þessi umr. sé ekki til virðingar Alþingi.