18.02.1985
Efri deild: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2973 í B-deild Alþingistíðinda. (2447)

226. mál, vélstjórnarnám

Frsm. (Haraldur Ólafsson):

Virðulegi forseti. Menntmn. Ed. hefur fjallað um frv. til l. um vélstjóranám og er sammála um að mæla með að það verði samþykkt óbreytt. Á fund n. kom Stefán Ólafur Jónsson deildarstjóri í menntmrn. og skýrði frá ýmsu í sambandi við framkvæmd í menntunarmálum vélstjóra ef frv. yrði að lögum.