21.02.1985
Sameinað þing: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3097 í B-deild Alþingistíðinda. (2589)

123. mál, ilmenitmagn í Húnavatnssýslum

Flm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég tala hér fyrir till. til þál. á þskj. 127 um framhaldsrannsóknir á ilmenitmagni í Húnavatnssýslum og eiginleikum þess og vinnsluhæfni. Till. þessi hefur verið flutt tvívegis áður, en ekki hlotið afgreiðslu úr nefnd. Till. hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta fara fram frekari rannsóknir á þeim ilmenitsvæðum sem þekkt eru í Húnavatnssýslum og leita nýrra svæða þar sem titanríkt basískt berg kynni að vera í verulegum mæli.

Skal rannsóknin beinast að magni titans og annarra verðmætra efna í berginu og vinnsluhæfni þeirra. Niðurstöðum rannsóknarinnar skal fylgja frumáætlun um arðsemi, vinnslu, mannaflaþörf og fjárfestingarkostnað, markaðshorfur svo og önnur atriði sem rannsóknaraðilar telja máli skipta.“

Það ilmenit, sem hér hefur fundist, inniheldur titan sem er verðmætur léttur málmur sem m.a. er mikið notaður sem íblöndun við aðra málma. Langstærsti hlutinn fer þó til framleiðslu á málningarvörum þar sem við þekkjum það allvel. Einnig er titan notað sem einangrun í suðuþráð og karbítþráð, svo og við pappírsvinnslu, plastvinnslu o. fl. Með flutningi þessarar þáltill. vilja flm. vekja athygli á hugsanlegum möguleika til vinnslu þessa efnis. Þáltill. fjallar fyrst og fremst um rannsóknir á magni titans og annarra málma sem samhliða vinnslu þess væri hagkvæmt að nýta.

Vitað er um nokkra staði í Húnavatnssýslum þar sem ilmenit er að finna, en ilmenit er titansteind sem er eitt helsta titanhráefnið í heiminum sem urinið er úr. Ilmenitið er unnið bæði úr bergi og sandi og er það aðallega í basísku djúpbergi. Þeir staðir, sem nú eru þekktir í Húnavatnssýslum, þar sem ilmenit er að finna, eru Steinsvað í Víðidalsá, Urðarfeil upp af Melrakkadal í Víðidal, Hólar og Skessusæti austan og norðan í Víðidalsfjalli, Deildarhjalli í Vatnsdalsfjalli og nokkrir aðrir staðir.

Þær takmörkuðu rannsóknir, sem fram hafa farið á þessum stöðum, benda til þess að þar geti verið um mikið magn af basísku bergi að ræða og hafa frumrannsóknir sýnt athyglisvert magn af titan, auk málmsteinda, í berginu.

Árið 1976 fól Framkvæmdastofnun ríkisins Baldri Líndal efnaverkfræðingi að kanna tilvist málmríkra steinefna í Víðidal. Í því sambandi voru gerðar efnagreiningar og málmskiljutilraunir á sýnum og var gefin út um það skýrsla merkt „Áfangaskýrsla I“ frá Verkfræðistofu Baldurs Líndals.

Árið 1978 var gefin út könnunarskýrsla Iðnþróunarstofnunar Íslands og Orkustofnunar um íslenskt ilmenit. Fram kemur í skýrslunni að þótt hlutfall titans og annarra verðmætra efna í íslensku ilmeniti sé e.t.v. lágt miðað við það sem best gerist erlendis, þá sé nú tekið til vinnslu berg með sífellt minna innihaldi verðmætra efna með hverju árinu sem líður, þar sem auðugustu námurnar eru nýttar fyrst og verið er að taka til vinnslu námur sem ekki þóttu vinnsluhæfar áður.

Rannsóknir virðast sýna að á Íslandi sé titanauðugt berg í allmiklum mæli. Einnig virðist kornastærð, aukaefni, harka bergsins o.fl., sem máli skiptir varðandi vinnsluhæfni, hagstætt íslensku ilmeniti.

Í skýrslu Orkustofnunar og Iðnþróunarstofnunar um íslenskt ilmenit frá árinu 1978, sem áður er vitnað til, segir m.a.:

„Steinsvað. Gabbró sést á smábletti undir brú á Víðidalsá hjá Lækjamóti. Berg þetta er grófkornótt og inniheldur yfir 3% titanoxíðs. Sýni úr þessu bergi hefur verið rannsakað nánar“, og er til um það skýrsla frá Baldri Líndal og Sigurði Steinþórssyni frá árinu 1977.

„Titaninnihald reyndist þá samsvara 4.4%, sem tókst að auka með þyngdarskiljum ákveðinnar kornastærðar í um 25% titanoxíðs, en talið var að þar mætti hæglega gera betur. Þarna við Steinsvað nær gabbróið rétt upp fyrir vatnsborð Víðidalsár. Útbreiðsla þess nærlendis er óþekkt, þar eð bergið er allt hulið þykkum lausum jarðlögum. Hins vegar eru góðar líkur á að kanna mætti tilvist eða útbreiðslu gabbrósins þarna með jarðfræðilegum aðferðum“.

Með tilkomu þeirrar miklu orkuvinnslu sem nú er unnið að í Húnavatnssýslu og nálægðar tveggja þéttbýlisstaða, Hvammstanga og Blönduóss, og góðra samgangna og þéttbýlla sveita virðast ýmis skilyrði vera fyrir hendi til framkvæmda og framleiðslu ef þær rannsóknir, sem þáltill. þessi gerir ráð fyrir að fram fari, leiða í ljós að hagkvæmt sé að hefja vinnslu titans og annarra verðmætra efna á þeim stöðum sem þáltill. þessi fjallar um.

Það má koma hér fram að ég geri mér í sjálfu sér ekki ljósa grein fyrir því um hversu álitlegan kost hér er verið að ræða. Þó tel ég víst að hann sé það álitlegur að

óskynsamlegt sé annað en að rannsaka sem gaumgæfilegast þá staði sem hér um ræðir í nefndri till.

Það að lagt er til að rannsóknir fari fram á nefndum jarðefnum í því kjördæmi er við flm. till. erum fulltrúar fyrir er ekki óeðlilegt. En við minnum einnig á aðra mögulega staði, svo sem á Austurlandi, sem sjálfsagt og eðlilegt er að einnig verði athugaðir þannig að myndin öll verði sem skýrust að rannsókn lokinni.

Það er að sjálfsögðu ástæðulaust að benda sérstaklega á mismun þess að vinna dýrmæt hráefni til iðnaðarframleiðslu úr íslenskri jörð eða flytja hráefnið óravegu hingað til vinnslu, eins og nú er gert. Okkur Íslendingum er það mjög nauðsynlegt að rannsaka og skoða þá kosti sem landið hefur að geyma. Íslendingar verða því aðeins efnahagslega sjálfstæð þjóð að takast megi að afla auðs úr því sem okkar eigið land og landhelgi hefur að geyma.

Ég vona að örlög þessarar þáltill. verði önnur nú en á síðasta þingi, þar sem hún dagaði uppi í nefnd þingsins, ekki síst vegna þess að þeir aðilar sem leitað var til með umsagnir voru jákvæðir í málinu um frekari skoðun á þessum atvinnukosti. T.d. segir í umsögn Orkustofnunar, dags. 20. mars 1984, m.a.:

Þáltill. fjallar um rannsókn á ilmeniti í Húnavatnssýslu þar sem það er að finna í bergi. Fyrsta stig í frekari rannsóknum á því eru skv. framansögðu tilraunir á sýnum úr gabbrói sem þegar hefur fundist þar og annars staðar hér á landi í því skyni að meta hvort það berg teljist nothæft til ilmenitvinnslu. Í samræmi við það telur Orkustofnun æskilegt að orðalag þáltill. verði gert hnitmiðaðra í þessa átt, ef till. verður samþykkf, og upphaf hennar orðist eitthvað á þessa leið:

Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta fara fram tilraunir er miði að því að meta hæfni gabbróbergs, sem fundist hefur í Húnavatnssýslum og víðar, til að vinna úr því ilmenit. Verði árangur þeirra jákvæður láti ríkisstj. fara fram frekari rannsóknir á þeim ilmenitsvæðum sem þekkt eru í Húnavatnssýslum og leita nýrra svæða þar sem titanríkt basískt berg kynni að vera í verulegum mæli.“

Þetta var úr áliti frá Orkustofnun.

Í umsögn Iðntæknistofnunar, sem er dags. 8. apríl 1984, segir m.a. í lokaorðum:

„Að því gefnu að Alþingi telji lítt álitlegt að kanna frekar vinnslu ilmenits á Íslandi er eðlilegt að skoða og kanna fýsileik verkefnisins í heild, þ.e. að gera forathugun á stofn- og rekstrarkosfnaði ilmenitvinnslu þar sem og yrði litið til enn frekari úrvinnslu. Í forathugun er almennt stefnt að + eða - 20% nákvæmni í áætlun kostnaðarliða. Slík könnun gæti verið grundvöllur viðræðna við hugsanlega erlenda samstarfsaðila. Næsta ólíklegt er að unnt sé að hefja viðræður án slíkra upplýsinga um markaðs- og tæknimál ásamt upplýsingum um fundarstað íslensks ilmenits hérlendis og hugmyndir um líklegar gæðunaraðferðir.“

Þetta var í umsögn Iðntæknistofnunar.

Það sem fyrir okkur flm. vakir er að heimild fáist til að framkvæma jarðfræðiathuganir á nokkrum stöðum þannig að vitneskja fáist um magn, efnisgæði og vinnslumöguleika, sem frekari áætlanir mætti byggja á. Ég vil trúa því að alþm. séu mér sammála um að okkur Íslendingum sé nauðsyn að vinna að aukinni verðmætasköpun í landinu sem fyrst og fremst byggist á því sem landið sjálft hefur okkur að gefa. Þótt nokkur vitneskja sé þegar fyrir hendi um verðmæt efni í jörðu hér á landi ber okkur að leitast við að bæta við þá vitneskju með frekari rannsóknum. Það er með þessi grundvallaratriði í huga sem flm. flytja þessa þáltill.

Herra forseti. Að lokinni þessari umr. legg ég til að till. verði vísað til atvmn. og vænti ég þess að hún njóti skilnings og fái jákvæða afgreiðslu hér á hv. Alþingi.