11.03.1985
Sameinað þing: 56. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3441 í B-deild Alþingistíðinda. (2775)

Varamaður tekur þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Sigríðar Þorvaldsdóttur sem hlaut sæti 2. varamanns Samtaka um kvennalista. Hún tekur sæti Kristínar Halldórsdóttur, 7. landsk. þm., en 1. varamaður Samtaka um kvennalista. Málmfríður Sigurðardóttir, hefur sent bréf og tilkynnt að hún geti ekki tekið sæti á Alþingi vegna anna.

Kjörbréfanefndin hefur athugað bréfið, finnur ekkert athugavert og leggur til að það verði samþykki.