12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3483 í B-deild Alþingistíðinda. (2818)
318. mál, framtíðarflugvallarstæði fyrir Ísafjörð
Fyrirspyrjandi (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Þá erum við loksins farnir að tala um sama málið, ég og hæstv. samgrh., og hefði verið betra að við hefðum byrjað á því strax til að spara tímann. Mér er sagt af flugmálayfirvöldum að það sé alls ekki kostnaðarsamt að ganga úr skugga um með frumveðurfarsathugunum hvort það sé eitthvað sem frá þeim sjónarhóli útilokar flugbraut á þessum nýja stað, sem verið er að ræða um, eins og gerðist með Arnardal. Ég held að hæstv. samgrh. geti innan þess ramma sem honum hefur verið sniðinn mætavel látið slíka frumathugun fara fram á því hvort veðurfarsskilyrði útiloka byggingu flugbrautar.