12.03.1985
Sameinað þing: 58. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3502 í B-deild Alþingistíðinda. (2848)
162. mál, stighækkandi eignarskattsauki
Flm. (Jón Baldvin Hannibalsson):
Ég hef enga athugasemd að gera við þessa athugasemd forseta. Með vísan til þess að ég hef þegar svarað þeirri gagnrýni sem þegar hefur verið hreyft gegn þessu máli, reyndar undir öðrum dagskrárlið. og með vísan til þess að málið er mjög ítarlega rökstutt í ítarlegri grg. ásamt með fjöldanum öllum af fylgiskjölum sem hv. þm. hafa greiðan aðgang að sé ég ekki ástæðu til að hafa þessa ræðu lengri.