18.03.1985
Efri deild: 50. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3620 í B-deild Alþingistíðinda. (2943)

363. mál, lagmetisiðnaður

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Virðulegi forseti. Á þskj. 576 flyt ég frv. til l. um breytingu á lögum nr. 58 frá 4. júní 1981, um lagmetisiðnað og Þróunarsjóð lagmetisiðnaðarins, með síðari breytingum, en þær hafa verið tvær. Á tveggja ára fresti hafa þessi lög verið framlengd og renna sitt skeið á enda hinn 31. desember n. k.

Með frv. þessu er lagt til að framlengdur verði gildistími þeirra ákvæða laga um lagmetisiðnað og Þróunarsjóð lagmetisiðnaðarins er varða Sölustofnun lagmetis og að breytt verði ákvæðum um skipun stjórnar Þróunarsjóðs lagmetisiðnaðarins. Frv. er flutt skv. tilmælum Sölusamtaka lagmetisiðnaðarins, en stjórn Sölustofnunar lagmetis telur mikilvægt að stofnunin hafi áfram einkarétt til að annast sölu á niðursoðnum og niðurlögðum sjávarafurðum til landa þar sem ríkisstofnun, ríkið sjálft eða aðili fyrir þess hönd er aðalkaupandinn og raunar eini kaupandinn.

Rök fyrir einkarétti eru m. a. þau að í löndum Austur-Evrópu, þar sem eru mikilvæg markaðssvæði fyrir íslenskt lagmeti, er hvarvetna einn kaupandi og því ekki um neina samkeppni að ræða kaupanda megin. Slíkur kaupandi væri því, ef ekki nyti við einkaréttar Sölustofnunar lagmetis, í aðstöðu til að fara milli seljenda á Íslandi og freista þess að fá verðið lækkað. Slík tilhögun yrði íslenskum seljendum í óhag. Rétt þykir að bregðast við þessu með áframhaldandi einkarétti og jafna þar með samningsstöðuna. Er því lagt til að 1. kafli laga nr. 58/1981, þ. e. greinarnar 1–8 að báðum meðtöldum, falli ekki úr gildi fyrr en 31. desember 1990. En rétt þykir að einkarétturinn verði bundinn sömu skilyrðum og áður og að því tilskildu að starf Sölustofnunar verði áfram háð reglum 1.–8. gr. framangreindra laga. Hér er sem sagt lagt til að þessi einkaréttur verði framlengdur um fimm ár. Á undanförnum árum þrívegis hefur þessi réttur einvörðungu verið bundinn við tvö ár.

Þá þykir og rétt að taka nú ákvæði um skipun stjórnar Þróunarsjóðs lagmetisiðnaðarins til endurskoðunar, þannig að áhrif Sölustofnunar verði aukin, enda eru fullvinnslugjöld, er aðildarfyrirtæki stofnunarinnar greiða, megintekjustofn sjóðsins. Þá þykir rétt að sjútvrh. hafi óbundnar hendur við tilnefningu stjórnarmanns, en skv. gildandi lögum ber honum að leita ábendinga sölusamtaka íslenskra fiskframleiðenda áður en tilnefning fer fram. Með sama hætti er talið eðlilegt að iðnrh. skipi án tilnefningar, auk formanns, annan stjórnarmann.

Ég legg svo til, virðulegi forseti, að þegar þessari umr. lýkur verði frv. þessu vísað til 2. umr. og iðnn.