18.03.1985
Neðri deild: 48. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3625 í B-deild Alþingistíðinda. (2953)

227. mál, dómsvald í héraði

Frsm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 565 sem fjallar um 227. mál, en það er frv. til l. um breyt. á lögum nr. 74 27. apríl 1972, um skipan dómsvalds í héraði, lögreglustjórn, tollstjórn o. fl.

Allshn. Nd. hefur fjallað um þetta frv., en meginefni þess fjallar um starfsheiti borgarfógeta og héraðsdómara. Hefur nefndin orðið sammála um að mæla með því að þetta frv. verði samþykkt óbreytt.