19.03.1985
Sameinað þing: 60. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3635 í B-deild Alþingistíðinda. (2978)

278. mál, tannsmíðanám

Fyrirspyrjandi (Árni Johnsen):

Hæstv. forseti. Ég hef borið fram fsp. til hæstv. menntmrh. varðandi fyrirkomulag tannsmíðanáms. Það hefur verið í deiglunni í mörg ár að koma því námi haganlega fyrir í okkar skólakerfi og hefur ekki gengið upp enn þá. Það hefur verið margt óljóst í þeim efnum og skiptar skoðanir hafa valdið truflun á námi í þessari grein. Því spyr ég hæstv. menntmrh. um stöðu þessa máls.