19.03.1985
Sameinað þing: 60. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3636 í B-deild Alþingistíðinda. (2982)
278. mál, tannsmíðanám
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Ég kann nú betur við, herra forseti, að svara þessu.
Svarið liggur í því að ég ítreka það, sem ég sagði áðan, að ég tel að þetta mál sé leyst núna. Sú lausn sem núna liggur fyrir er ekki frambúðarlausn, en ég ítreka það að það mun verða unnið að henni í haust. Það fékkst ekki fjárveiting fyrir því, sem við ætluðum að gera á vegum Háskólans, að sinni og þess vegna er leitað samstarfs við Iðnskólann. Það samkomulag er í sjónmáli. Þetta mál verður leyst á þessu ári og það er aðalatriðið. Hvort það er á reikning Iðnskólans eða Háskólans skiptir ekki öllu máli, heldur hver er frambúðarlausn og að þeir sem bíða lausnar sinna mála fái hana.