21.03.1985
Sameinað þing: 62. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3731 í B-deild Alþingistíðinda. (3081)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Svohljóðandi bréf hefur borist:

„20. mars 1985.

Friðrik Sophusson, 2. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að vegna setu 1. varamanns á Alþingi taki 2. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík, Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs þings.“

Guðmundur H. Garðarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til þingstarfa.