21.03.1985
Sameinað þing: 62. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3781 í B-deild Alþingistíðinda. (3112)
361. mál, uppboðsbeiðnir Fiskveiðasjóðs
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða beiðnir hefur Fiskveiðasjóður lagt fram um nauðungaruppboð á fiskiskipum vegna vanskila við sjóðinn?
2. Hvaða fiskiskip eru í slíkum vanskilum við sjóðinn að óskað mun verða nauðungaruppboðs?
Svar: Með bréfi, dags. 14. þ. m., senduð þér, hr. forseti, ráðuneytinu fyrirspurn hr. Skúla Alexanderssonar alþingismanns til sjávarútvegsráðherra um uppboðsbeiðnir Fiskveiðasjóðs, 361. mái, þskj. 574.
Með bréfi, dags. 15. þ. m.., leitaði ráðuneytið atbeina Fiskveiðasjóðs Íslands um svar við fyrirspurninni. Í bréfi Fiskveiðasjóðs, dags. 19. mars, segir svo:
Sem svar við fyrirspurninni viljum vér taka fram: 1. Fiskveiðasjóður Íslands hefur beðið um nauðungaruppboð á eftirtöldum fiskiskipum:
Togarar:
S-1556 SÖLVI BJARNASON BA-65 404 rúml., stál 1980
S-1576 KOLBEINSEY ÞH-10 430 rúml., stál 1981.
S-1585 SIGURFARI II. SH-105 431 rúml., stál 1981.
Vélskip yfir 100 rúmlestir:
S-76 HELGI S. KE-7 236 rúml., stál 1959.
S-1209 FREYJA GK-364 120 rúml., stál 1972.
Vélskip undir 100 rúmlestum:
S-552 JÓN ÁSGEIR ÍS-95 5 rúml., fura og eik 1954.
S-913 VÍÐIR KE-102 11 rúml., fura og eik 1961.
S-1225 ARON RE-105 12 rúml., stál 1960.
S-1423 ÞORSTEINN HF-107 22 rúml., fura og eik 1975.
S-1470 MÁR NS-87 37 rúml., eik 1976.
S-1537 EVA LIND ÍS-182 9 rúml., fura og eik 1978.
S-1570 SÆUNN ÓF-7 9 rúml., trefjaplast 1980.
Sjóðurinn er ekki aðili að fleiri uppboðsmálum vegna fiskiskipa sem stendur.
Reynslan verður að leiða í ljós hvort úr nauðungarsölu verður, svo og hvort vér eða aðrir verða hæstbjóðendur.
2. Sjóðurinn hefur að svo stöddu ekki í hyggju að biðja um nauðungaruppboð á öðrum fiskiskipum. Samkvæmt eðli máls verður þó alltaf að gera ráð fyrir að til slíks geti komið með stuttum fyrirvara.“