25.03.1985
Sameinað þing: 63. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3785 í B-deild Alþingistíðinda. (3113)

Varamaður tekur þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„25. mars 1985.

Pálmi Jónsson, 1. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Páll Dagbjartsson skólastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Þessu bréfi fylgir kjörbréf Páls Dagbjartssonar. Með því að Páll Dagbjartsson hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður þarf að taka kjörbréfið til meðferðar. Vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til meðferðar. Á meðan verður fundi frestað í 5 mínútur. — [Fundarhlé.]