25.03.1985
Efri deild: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3794 í B-deild Alþingistíðinda. (3131)

331. mál, náttúruvernd

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Vegna orða hv. 6. landsk. þm. vil ég taka undir þau síðustu orð hans að hv. þdm., eins og reyndar hv. þm. almennt, gæti orða sinna í umræðum hér og láti það ekki henda sig að hafa uppi óviðurkvæmilegt orðalag. En það er oft erfitt að meta hvenær þingforseti á að áminna menn í slíkum efnum og það gæti orðið til að æra óstöðugan. En ég tek undir með hv. þm. í þessu efni.