25.03.1985
Neðri deild: 51. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3808 í B-deild Alþingistíðinda. (3156)
347. mál, aðgerðir til að bæta hag sjómanna
Garðar Sigurðsson:
Herra forseti. Það fór ekkert á milli mála hvaða mál var á dagskrá, ósköp einfaldlega vegna þess að það var villa í frv. og hana þurfti að leiðrétta. Við getum ekkert að því gert þó að þetta mál komi hér fyrir oftar en hefði þurft ef vinnan við undirbúning frv. hefði verið vandaðri. Hins vegar kipptum við þessu í liðinn, félagarnir, og þetta er sem betur fer að komast á leiðarenda, jafnvel þó að ljóst sé að þetta hefði getað verið komið í gegnum báðar deildir þingsins ef áhugi hefði verið fyrir hendi.
Hv. 5. þm. Austurl. Hjörleifur Guttormsson hreyfði hérna ákaflega litlu máli. Þá á ég við að það skiptir sáralitlu hvort trillur og smábátar fá einhverjum tonnum meira eða minna í heildina. En það skiptir þá aðila sem róa á þessum litlu bátum mjög miklu að einn besti tími ársins sé ekki tekinn af þeim við þessar veiðar. Íslendingar veiddu á síðasta ári millj. tonn og meira en það. Þeir dagar sem nú eru teknir af trillubátamönnum skipta örfáum hundruðum og kannske tveimur, þremur þúsundum tonna í það heila. Þetta eru smámunir. Það skiptir í raun ekki máli þegar heildardæmið er skoðað. Því miður hafa þessar takmarkanir verið hér til margra ára. Það er ekki verið að finna þetta upp núna. Og það er ekki heldur verið að finna þetta upp úr kvótakerfinu. Það er misskilningur. Það eru fjöldamörg ár frá því að veiðar voru takmarkaðar hjá þessum bátum, ranglega að mínum dómi allan tímann. Hins vegar sé ég ekki nokkra einustu ástæðu til þess að hv. þm. Karvel Pálmason komi hér og hrópi: Kvótakerfið burtu, kvótakerfið burtu, eins og hann er vanur með miklum hávaða, en hefur lítinn grunn á bak við sig. Sannleikurinn er sá að við athugun hefur komið í ljós að u. þ. b. áttatíu af hverjum hundrað útgerðarmanna og sjómanna í landinu vilja kvótakerfið. Þeir sjá það, þessir menn sem standa í þessu, að það var ekkert annað að gera. Auðvitað sjáum við hver og einn fyrir sig stórkostlega galla við kvótakerfið. Hver vill hafa kvótakerfið? Það er í rauninni ekki spurningin. Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að jafnvel þótt kvótakerfið sé slæmt er það skárra en hinar lausnirnar sem til voru. Þannig er það alveg út í hött þegar hv. þm. Karvel Pálmason fer að nudda sér upp úr kvótakerfinu þó að verið sé að minna á þarna lítið en samt nokkuð merkilegt mál.
Á s. l. ári voru veiðar þessara smábáta t. d. stöðvaðar í nóvember sennilega vegna þess að þessar fáu trillur voru á sjó og gátu róið. Menn verða nú að athuga hvernig veðurlag er seinni part nóvember eða í desember. Það er ekki alltaf sumar og síst í desember. Trillurnar voru stöðvaðar, máttu ekki fara á sjó þessa örfáu daga sem hugsanlegt var að komast út og sækja eitthvað í soðið. Var mikil hætta á því að þessar örfáu trillur dræpu stofninn? Auðvitað ekki. Gallinn er bara sá að menn horfa ekki á málið allt en eru að einblína á smáatriði sem ekki skipta máli fyrir heildina, en skipta þeim mun meira máli fyrir þá sem byggja afkomu sína á þessum veiðum.
Herra forseti. Hæstv. ráðh. sagði hér áðan að það hefði verið góður fiskur og mikill afli. Það var röksemdin fyrir því að það ætti að geyma þessa báta í landi. Öllu er nú öfugt snúið.