25.03.1985
Neðri deild: 51. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3818 í B-deild Alþingistíðinda. (3164)
315. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Ég ætla ekki að taka þátt í heimiliserjum Alþb. (ÓRG: Þú ert nú vanur að blanda þér í þær.)
Ég tel að það sé rétt hjá hv. 10. landsk. þm., þrátt fyrir það mál sem hér er nú til umr. eins og það birtist á þskj. 500, að huga þurfi að fleiri starfsstéttum. Það eru fleiri starfsstéttir sem þurfa á athygli okkar að halda og bættum lífskjörum. Það fer ekkert á milli mála. Ég vil taka undir það. Að því vinnur ríkisstj. Það er líka rétt hjá henni að ríkissjóði eru takmörk sett, hvað gjaldþol ríkiskassans er mikið. En það fer allt eftir þeim ákvörðunum sem Alþingi tekur á þeim tíma sem fjárlög eru samþykkt. Það er í höndum Alþingis á hverjum tíma hver útgjöld eru og hverjar tekjur koma á móti. Ég hef sagt það hér nokkrum sinnum síðan ég tók við starfi mínu sem fjmrh. að í gegnum árin hefur Alþingi hlaðið svo á útgjaldahlið ríkissjóðs að ég óttast að útkoman úr þeirri úttekt sem ég er nú að láta gera og unnin er af einum færasta lögfræðingi þessa lands, Páli Líndal eigi eftir að sýna að útgjöld þau sem Alþingi Íslendinga og við öll höfum hlaðið á fjárlögin séu meiri en tekjur standa undir. (GHelg: Ráðh. hefur samt efni á því að létta sköttum af fyrirtækjaeigendum.)
Þrátt fyrir það sem ég hef nú sagt vil ég segja að þetta frv., sem hér er flutt, er flutt með því góða hugarfari að létta undir með þeim sem vinna í undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar og að þeirri verðmætasköpun sem stendur undir allri velmegun þjóðarinnar. Því ber okkur skylda til að gleyma ekki því fólki þegar við ráðstöfum því sem við teljum að við getum ráðstafað til að létta byrðum af almenningi í landinu. Ég tek því undir þá hugsun sem felst í frv. Ég kvíði því einu, ef það verður samþykkt og kemur strax til framkvæmda, sem 2. gr. frv. gerir ráð fyrir, að það verður erfitt fyrir ríkissjóð vegna þess að fjárlög hafa verið samþykkt. Þau útgjöld sem þá bætast við eru ekki inni í útgjaldaáætlunum fjárlaga.
Ég undirstrika þetta um leið og ég minni á að það er samþykkt ríkisstjórnarflokkanna að fella niður tekjuskatt í áföngum. Fyrsti áfanginn er þegar kominn til framkvæmda. 600 millj. kr. niðurfelling átti sér stað við gerð tekjuhliðar fjárlaganna síðast. Ég tek undir það, sem kom fram hjá flm., hv. 7. þm. Reykv. Guðmundi J. Guðmundssyni, að málið fari til n. og að þar verði það skoðað. Ég veit ekki betur en að hv. flm. Guðmundur J. Guðmundsson sé í fjh.- og viðskn. (GJG: Nei, nei. Það er búið að reka mig úr henni.) Er búið að reka þig úr henni? Það þykir mér leitt því ég ætlaði að vona að hv. þm. gæti sjálfur fylgt málinu þar eftir, þannig að hann þyrfti ekki að óttast um að málið yrði svæft.
Ég vil taka það fram, sem ég hef áður tekið fram, að á ferðum mínum um landið í forsetakosningum 1980 átti ég þess kost að heimsækja frystihús vítt og breitt um landið. Mér til mikillar furðu kom í ljós að einu aðilarnir sem eru ábyrgir fyrir gæðum útflutningsafurðanna eru þær stúlkur sem pakka vörunni. Þær setja sitt númer í kassa sem hægt er að rekja til þeirra. Ekki er hægt að rekja neitt annað í sambandi við afgreiðslu til útlanda, eða var ekki þá, nema að vörumerkið er hægt að rekja, frá hvaða fyrirtæki varan kemur, og það fer eftir númerunum líka. Sá sem gengur frá vörunni og er einn ábyrgur fyrir gæðum hennar er stúlkan sem stendur við borðið og hreinsar fiskinn og setur hann í umbúðir. Það er að mínu mati athyglisvert því enginn annar hærra settur í framleiðslu- og sölukeðjunni er eins ábyrgur og þeir sem hreinsa fiskinn og pakka og búa þó jafnframt við hvað minnst atvinnuöryggi, eins og kom fram frá flm. Ég tek því undir þetta frv., en bendi á að það er stefna ríkisstj. og það er stefna Sjálfstfl., sem er miklu eldri en stefna ríkisstj. og var samþykkt á flokksfundi sem var haldinn í Borgarnesi fyrir nokkrum árum, að fella skuli niður tekjuskatt. Þetta frv. er því í anda Sjálfstfl.
Ég vil vara við því, þegar góð mál koma fram eins og þetta, að aðrir þm., jafnvel samflokksmenn þeirra sem eru flm., komi upp og yfirbjóði: Það er ekki tekið nógu stórt skref. Það á að gera meira. — Það er ekki alveg nógu gott.
Ég vil ljúka þessum orðum með því að taka undir þá hugsun sem kemur fram í þessu frv., en ég efast um, og ég segi það til að kveikja ekki falskar vonir hjá þeim sem hér eiga hlut að máli, að hægt verði að framkvæma þetta með þeirri gildistöku sem getið er um í 2. gr. þessa frv. Við skulum vera raunsærri þannig að fólk geti treyst því að það sem er borið fram og samþykkt, verði það samþykkt, verði þá hægt að framkvæma líka.