26.03.1985
Sameinað þing: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3851 í B-deild Alþingistíðinda. (3208)
377. mál, skortur á hjúkrunarfræðingum
Fyrirspyrjandi (Maríanna Friðjónsdóttir):
Herra forseti, virðulegi þingheimur. Hér á borðum liggur frammi eftirfarandi fsp. á þskj. 605 til hæstv. heilbrrh., með leyfi forseta:
„Til hvaða aðgerða hyggst heilbrrh. grípa vegna skorts á hjúkrunarfræðingum til starfa á kvenlækningadeild Landspítalans?“
Tilefni fsp. þessarar er ljóst. Kvennadeild Landspítalans er gert að þjóna konum af öllu landinu. Íslenskar konur eru nú hátt á annað hundrað þúsund en til þess að gæta allrar sanngirni má ætla að þær konur sem helst þyrftu á þjónustu kvennadeildar að halda séu nálægt 40 þúsund og er þá vísað til kvenna á aldrinum 24–55 ára. Til að fullnægja þessu stóra þjónustuhlutverki sínu við íslenskar konur hefur kvennadeild 26 rúm til umráða. Níu af þessum rúmum hafa að meðaltali staðið auð frá því í október s. l. eða í um hálft ár. Deildin hefur því að jafnaði getað haft 17 rúm opin. Þegar þess er gætt að 12 af þessum rúmum eru ætluð fyrir konur með krabbameinssjúkdóma þá eru þau orðin fá rúmin sem ætluð eru konum með aðra kvensjúkdóma. Ástæða þessa er að hjúkrunarfræðinga vantar í rúmlega fjórar stöður til þess að unnt sé að halda uppi fullu starfi á kvennadeild og dagdeild.
Það þarf ekki að hafa mörg orð um það að dýrt er fyrir þjóðarbúið að geta ekki nýtt þá aðstöðu sem þarna er búið að fjárfesta í. Og ef litið er á mannlega þáttinn þá er óþolandi að konur geti ekki fengið bót meina sinna og þurfi að þjást jafnvel vikum eða mánuðum saman vegna ofangreindra ástæðna. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa íslenskra kvenna að fullu starfi sé haldið uppi á kvennadeild, þannig að aðgangur sé að þeim 26 rúmum sem fyrir hendi eru en að þriðjungi þeirra sé ekki lokað vegna skorts á menntuðu starfsfólki. Ég tel því hæstv. heilbrrh. skylt að grípa nú þegar til einhverra þeirra aðgerða sem verða til þess að deildinni sé gert kleift að halda uppi fullu starfi og æski þess hér með að fá svör hans við því.