27.03.1985
Neðri deild: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3913 í B-deild Alþingistíðinda. (3241)
49. mál, vinnumiðlun
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Á þskj. 619 er brtt. sem er tilkomin vegna þess að það urðu mistök í sambandi við afgreiðslu þessa máls og datt út önnur málsgr. 6. gr. Þar sem var búið að samþykkja greinina þannig við 2. umr. varð að koma fram með þessa brtt. Ég vil taka það fram að ég gegni nú um stundarsakir formennsku í félmn. en þar sem ég náði ekki til allra nm. áður en ég lagði brtt. fram þá flutti ég hana einn. En félmn. er sammála flutningi þessarar brtt.