27.03.1985
Neðri deild: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3913 í B-deild Alþingistíðinda. (3243)

209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Frsm. meiri hl. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. meiri hl. sjútvn. um frv. til l. um Verðlagsráð sjávarútvegsins, 209. mál, á þskj. 632. Nál. er þannig:

„Nefndin hefur athugað frv. á fundum sínum og leitað umsagna um málið. Nefndin klofnaði í afstöðu sinni. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.“ Undir þetta nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Garðar Sigurðsson, Ingvar Gíslason, Gunnar G. Schram og Halldór Blöndal.