27.03.1985
Neðri deild: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3933 í B-deild Alþingistíðinda. (3269)

Umræður utan dagskrár

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Ég harma afstöðu hæstv. menntmrh. í þessu máli og skora á hana að endurskoða afstöðu sína. Staðreyndin er að okkar æskufólk hefur ekki enn skilað þessu sameiginlega verkefni sem það er þátttakandi að, en æskufólk annarra Norðurlanda er búið eða er að ljúka við sinn hlut í þessu sameiginlega verkefni. Því er spurningin sú: Á að koma í veg fyrir að okkar æskufólk fái möguleika á að standa við sinn hlut í þessu máli? Það er þess vegna sem ég skora á hæstv. menntmrh. að endurskoða sína afstöðu.