10.04.1985
Efri deild: 55. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4109 í B-deild Alþingistíðinda. (3429)

217. mál, Seðlabanki Íslands

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Nú er svo komið að tími þessa fundar er liðinn. Ég veit ekki hvort hv. þdm. geta samþykkt að halda áfram ofurlítið lengur til þess að hægt sé að ljúka málinu. Nú er einn á mælendaskrá. (Gripið fram í.) Já, og annar hefur dregið sig til baka. Ef það er ekki mjög löng ræða. Annars verður að fresta málinu.