11.04.1985
Sameinað þing: 69. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4130 í B-deild Alþingistíðinda. (3464)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hv. 2. landsk. þm. hefur kvatt sér hljóðs utan dagskrár. Það skal tekið fram að þegar hafa 10 þm. kvatt sér hljóðs í þessari umr. utan dagskrár. Það kann að vera að ekki séu öll kurl komin til grafar nú þegar í þessu efni. Af þessu er ljóst að það er áríðandi að hv. þm. sýni hver öðrum þá tillitssemi að sem flestir geti komist að í umr. þessari. Og því fremur er nú lögð áhersla á þetta þar sem gert er ráð fyrir að þessum þingfundi verði lokið um kl. 4. Auk þess er þess að minnast að fyrir fundinum liggur dagskrá sem sinna þarf.