11.04.1985
Sameinað þing: 69. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4152 í B-deild Alþingistíðinda. (3477)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Nú er kominn sá tími þegar ætlað var að slíta þessum fundi. En með skírskotun til þess sem áður var sagt um hve óheppilegt og óeðlileg vinnubrögð í sjálfu sér það eru að fresta slíkri umr. sem þessari, þá mun verða leitast við að ljúka henni. Það eru aðeins tveir á mælendaskrá og ef þeir tveir hv. þm. tala samanlagt aðeins nokkrar mínútur þá mun takast að ljúka þessari umr. Annars verður henni frestað.