15.04.1985
Neðri deild: 56. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4185 í B-deild Alþingistíðinda. (3514)
50. mál, ríkisábyrgð á launum
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Þetta verður örstutt. Ég met það svo, eftir því sem hæstv. ráðh. talar, að enn ætli menn að halda Vestfirðingum fyrir utan ríkisábyrgð við gjaldþrot að því er varðar orlofsfé. Það fást engin svör til þess að byggja á um að þeir búi undir sömu lögum og aðrir í þessu efni.
Það sem ég ætla fyrst og fremst að leiðrétta hjá hæstv. ráðh. er að miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur formlega tekið um það ákvörðun og óskað eftir því að ríkisábyrgð á orlofsfé nái til Vestfjarðasamkomulagsins eins og til fjár hjá póstgírói. Þannig er rangt hjá hæstv. ráðh. að verkalýðshreyfingin standi gegn því. Það eru ósannindi. Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur sérstaklega óskað eftir að ríkisábyrgð á þessum þætti launagreiðslu, sem er orlofsfé, nái til launþega á Vestfjörðum, undir því samkomulagi sem þar er, eins og hjá póstgírókerfinu. Það er nauðsynlegt að þetta komi fram.
Ég ítreka að eftir þessa umr., sem hér hefur átt sér stað nú, er nauðsynlegt að fresta henni til að kanna þetta mál niður í kjölinn og freista þess að fá gerðar breytingar, þannig að ekki sé enn aukið á óréttlætið í landinu og enn frekar sé leitt í ljós að ekki eigi allir að búa við sömu lög í þessu landi.