16.04.1985
Sameinað þing: 70. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4228 í B-deild Alþingistíðinda. (3585)
412. mál, olíuleit á landgrunni Íslands
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Ég gef eftirfarandi svar við fyrri lið fsp.:
Skv. samkomulagi Íslendinga og Norðmanna frá 1982 eiga Norðmenn að kosta olíuleitarrannsóknir á tilteknu svæði á landgrunninu milli Jan Mayen og Íslands. Aðilar skipuleggja þessar rannsóknir sameiginlega og báðir hafa rétt til þátttöku í úrvinnslu gagnanna.
Á árinu 1984 var unnið hjá Orkustofnun að skipulagningu þessara rannsókna og voru tillögur þar að lútandi sendar til olíustofnunarinnar í Noregi, Oljedirektoratet. Þær voru ræddar á sameiginlegum fundi í Reykjavík í janúar s. l. og var ákveðið að fara eftir þeim í megindráttum. Norðmenn hafa 12 milljóna norskra króna fjárveitingu til rannsóknanna á þessu ári og hefur nú verið samið við norska olíuleitarfyrirtækið GECO um framkvæmd tilheyrandi mælinga á sumri komanda. Íslenskur vísindamaður mun verða um borð og fylgjast með mælingum allan tímann, u. þ. b. einn mánuð. Gert er ráð fyrir að nánari úrvinnsla mælinganna fari fram í lok ársins eða á næsta ári.
Engin sérstök íslensk fjárveiting er ætluð til þátttöku í þessu verkefni á árinu 1985. Á fjárlögum er 12 millj. kr. framlag til setlagarannsókna og var þar ekki gert ráð fyrir þessu samvinnuverkefni á árinu. Orkustofnun hefur óskað eftir viðbótarfjárveitingu að upphæð 1 millj. kr. vegna Jan Mayen-verkefnisins en ekki fengið enn. Nauðsynlegt er að taka það mál upp aftur þar sem hér er um samningsbundið verkefni að ræða.
Vegna síðari liðar fsp. skal þetta tekið fram:
Í framhaldi af uppgötvun með óbeinum mælingum á mikilli setlagaþykkt á vissu svæði úti fyrir Norðurlandi fyrir u. þ. b. tíu árum var ákveðið haustið 1982 að bora rannsóknarholu í Flatey á Skjálfanda til nánari könnunar. Holan varð 554 metra djúp og staðfesti tilvist seflaga þarna. Bráðabirgðaskýrsla um borunina kom út um áramótin 1982–1983. Síðan hefur verið unnið áfram að rannsókn borkjarna úr holunni og mun lokaskýrsla um þær rannsóknir koma út hjá Orkustofnun í þessum mánuði.
Æskilegt er að rannsóknum úti fyrir Norðurlandi verði haldið áfram og þá í fyrstu með frekari endurkastsmælingum til að kanna betur stærð og lögun setlaganna. Í sumar gefst einstakt tækifæri til að fá slíkar mælingar gerðar á hagkvæman hátt í tengslum við Jan Mayen-rannsóknirnar. Skipið sem notað verður við þær þarf að koma einu sinni til Akureyrar meðan á mælingum við Jan Mayen stendur og þá er tækifæri til að fá gerðar mælingar yfir setlögunum. Þetta mál hefur verið rætt við fulltrúa GECO sem kom hingað til viðræðna nýlega. Fyrirtækið er reiðubúið að mæla þær línur sem Orkustofnun telur æskilegar, samtals um 300 km langar, fyrir um 3 millj. kr. Þetta er ekki nema tæpur helmingur af því sem sömu mælingar mundu kosta ef skipið kæmi sérstaklega frá Noregi til að framkvæma þær svo að hér er augljóslega um sérstakt tækifæri að ræða til að fá þessar mælingar gerðar.
Hafsbotnsnefnd iðnrn. hefur fjallað um þetta mál á fundi nýlega og er einhuga um að leggja til við rn. að fé verði útvegað til að framkvæma þessar viðbótarrannsóknir á setlögum úti fyrir Norðurlandi í sumar.