17.04.1985
Neðri deild: 58. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4318 í B-deild Alþingistíðinda. (3651)

355. mál, starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta

Frsm. (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Á þskj. 707 er álit heilbr.- og trn. um frv. til laga um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta. N. hefur fjallað um frv. og mælir einróma með samþykkt þess, en fjarverandi afgreiðslu málsins voru hv. þm. Guðrún Helgadóttir og Friðrik Sophusson. Þetta frv. er flutt af n. og við frekari meðferð málsins á nefndarfundi kom ekkert sérstakt fram. Við mælum með að frv. verði samþykkt.