30.10.1984
Sameinað þing: 11. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í B-deild Alþingistíðinda. (370)

66. mál, greiðslukort

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég vil aðeins upplýsa hæstv. menntmrh., sem ég skil vel að orðin sé lúin og þreytt af barningi síðustu vikna, um að ég sagði ekki fjölkunnugur heldur gjörkunnugur. Það má vel fyrirgefa hæstv. ráðh. að henni hafi misheyrst. Menn eru orðnir þreyttir eftir erfiða stjórnartíð.