23.04.1985
Sameinað þing: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4487 í B-deild Alþingistíðinda. (3761)

371. mál, verðuppgjör til bænda

Egill Jónsson:

Herra forseti. Þessi fsp. gefur ekki tilefni til mikilla umræðna. En ég mætti kannske minna hv. fyrirspyrjanda á það að það sem hann gagnrýndi mest í máli sínu var sett inn í framleiðsluráðslögin, ákvæði sem þar að lúta, árið 1979. Og hv. fyrirspyrjandi var einmitt ráðherra í þeirri ríkisstj. sem þá var við völd.