24.04.1985
Efri deild: 59. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4561 í B-deild Alþingistíðinda. (3837)

368. mál, ríkisreikningurinn 1980

Frsm. (Ragnar Arnalds):

Virðulegi forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningi fyrir árið 1980. Niðurstöðutölur ríkisreiknings eru birtar í frv. en nánari grein fyrir ríkisreikningi sem slíkum er að sjálfsögðu gerð í þskj. sjálfu sem útbýtt var hér á Alþingi fyrir nokkrum árum síðan. Nefndin mælir með því að frv. verði samþykkt.