30.04.1985
Sameinað þing: 76. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4613 í B-deild Alþingistíðinda. (3905)
411. mál, hvalveiðar
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að hafa hreyft þessu máli, lagt fram þessa fsp., og einnig þakka ég hæstv. sjútvrh. fyrir mjög gott svar við þessari fsp. Við þm. deildum hér og greiddum atkvæði þannig að munaði litlu um þá samþykkt sem gerð var 1983. Ég tel að það svar sem hæstv. sjútvrh. hefur lagt hér fram eigi að vera grundvöllur þess að Alþingi Íslendinga geti sameinast um þá stefnu sem þar hefur verið mörkuð. Þar hefur verið farið að á þann veg sem þál. mælti fyrir eins og hæstv. ráðh. benti á. Rannsóknir hafa verið stundaðar með það í huga að ákvörðun aðgerða í framtíðinni skuli byggjast á þeim rannsóknum.
Ég tel mig reyndar ekki hafa mikið meira um málið að segja að sinni. En mér finnst algjörlega ástæðulaust að þm. komi nú upp í ræðustól og mæli frýjuorð um afgreiðslu málsins fyrir tveimur árum. Hverjir voru þá hugdeigt lið eða ekki? Það hugsa ég að framtíðin eigi frekar eftir að skera úr um en einhver sérstakur ræðumaður geti gert það í dag.