03.05.1985
Neðri deild: 63. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4796 í B-deild Alþingistíðinda. (4048)
165. mál, sláturafurðir
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Þetta frv. er til staðfestingar á brbl. sem gefin voru út s. l. sumar. Þetta frv. er gamall kunningi. Það er raunar um það að heimild sé fyrir því að leyfa slátrun í sláturhúsum sem eru þannig úr garði gerð að þau hafa ekki fengið löggildingu. Farist mun hafa fyrir á síðasta þingi að framlengja þetta ákvæði og þess vegna varð að gefa út brbl. til þess að hægt væri að slátra s. l. haust.
Á þskj. 787 er nál. frá landbn. Hún leggur til að frv. verði samþykkt með einni breytingu, þ. e. að í stað 1986 verði sett 1987, þ. e. að þessi heimild sé veitt til 1987. Ég hafði samband við yfirdýralækni um þetta atriði og hann sagði að eins og ástandið væri í þjóðfélaginu væri hann alveg samþykkur því að þessi heimild yrði .til ársins 1987. Ég hafði einnig samband við ráðuneytisstjórann í landbrn. og hann mælti með því að þessi breyting yrði gerð á frv.