06.05.1985
Neðri deild: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4834 í B-deild Alþingistíðinda. (4110)

5. mál, útvarpslög

Frsm. meiri hl. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Það er aðeins til að endurvekja traust hv. 3. þm. Reykv. á skrifurum deildarinnar. Skrifarar buðu það fram í menntmn. að minni hl. hennar yrði meðflm. að þessari till. þegar málið var til meðferðar í deildinni en þeir töldu betra að hafa þennan hátt á og við sáum ekki ástæðu til að þröngva þeim til þess.