07.05.1985
Sameinað þing: 79. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4855 í B-deild Alþingistíðinda. (4128)

420. mál, fiskeldi

Fyrirspyrjandi (Guðmundur Einarsson):

Herra forseti. Ég skal ekki tala lengi. Vegna þess sem hæstv. ráðh. sagði síðast um órökstuddar fullyrðingar mínar, þar sem ég spurði um tiltekin efnisatriði sem hefðu verið í drögum til laga um fiskeldi, þá eru þær ekki órökstuddar. Ég hef fyrir því fulla vissu að þessar hugmyndir hafa verið settar í lög um fiskeldi.